|
Oracledagurinn 2005 - 9. maí
Þann 9. maí mun Index endurtaka leikinn
frá því í fyrra
og standa fyrir Oracledeginum 2005. Viðtökurnar í fyrra
voru vægast
sagt frábærar og er það okkur ánægja
að geta boðið þeim sem vinna
með Oracle á Íslandi að hitta virta fyrirlesara.
Ráðstefnan verður haldin að Hótel
Loftleiðum
þar sem fjallað verður um Oracle og afkastahámörkun
frá ýmsum sjónarhornum.
Fyrirlesarar eru ekki af verri endanum:
Gary Goodman, Cary Millsap, Dan
Tow, Magnús Kristjánsson
og Manh-Kiet Yap. Oracledagurinn 2005 er haldinn í samvinnu
við Félag Oracle Notenda á Íslandi.
Fyrirlesarar
Gary Goodman er annar
tveggja stofnenda
hotsos.com.
Gary hefur skrifað
greinar um aðferðafræði við afkastahámörkun
auk þess að kenna á
námskeiðum fyrir Hotsos, meðal annars á Íslandi.
Gary tók þátt í Oracledeginum 2004 í fyrra.
Cary Millsap stofnaði
Hotsos ásamt
Gary Goodman árið 1999. Hann vinnur sem forritari og
sérfræðingur
í afkastahámörkun hjá hotsos.com auk þess
að sinna rannsóknum.
Hann er aðalhöfundur Optimizing
Oracle Performance.
Cary hefur hannað og þróað mikið af kennsluefni
Hotsos auk þess
að skrifa fjöldann allan af greinum sem hægt er
að nálgast á hotsos.com.
Hann er einn af stofnendum Oak
Table. Cary var með erindi á Oracledeginum 2004
Dan Tow er sjálfstæður
ráðgjafi og starfar undir merkjum SingingSQL (www.singingsql.com).
Hann er höfundur SQL
Tuning þar sem fjallað er um áhrifaríka
aðferð sem
Dan hefur þróað til að hámarka afköst
SQL-kóða. Er þessi aðferð
ekki síst merkileg fyrir það að hún
virkar hvort heldur er
á Oracle,
SQL Server
eða DB2.
Manh-Kiet Yap starfar
sem þróunarstjóri hjá Oracle Corporation á EMEA
svæðinu. Hans sérsvið
er meðal annars Oracle Applications, iAS og þróunartól
fyrir Oracle. Hann heldur reglulega fyrirlestra á Oracle
OpenWorld og á notendaráðstefnum.
Magnús Kristjánsson starfar
sem þróunarstjóri
hjá TM Software Theriak. Magnús vann í 7 ár
hjá Oracle í Noregi
og Bretlandi sem sérfræðingur í gagnagrunnstækni
og XML. Magnús hefur tvívegis haldið erindi á Oracle
OpenWorld ráðstefnum um XML stuðning í Oracle.
Dagskráin
Tími |
Atburður |
| 8.00 - 9.00 |
Skráning |
| 9.00 - 9.10 |
Ráðstefnan sett |
| 9.10 - 10.00 |
Gary Goodman - The Performance Dangers of Database Independent
Applications |
| 10.00 - 10.20 |
Hlé |
| 10.20 - 11.00 |
Manh-Kiet Yap - Oracle commitment to .NET community. Oracle
developer tools for .NET. |
| 11.10 - 12.00 |
Manh-Kiet Yap - .NET and Oracle Web Service Interoperability.
Orchestration with .NET services (BPEL). |
| 12.00 - 13.00 |
Matur |
| 13.00 - 14.30 |
Cary Millsap - Profiling Oracle: How it works |
| 14.40 - 15.10 |
Magnús Kristjánsson - Case study: Performance review - A
healthy exercise. |
| 15.10 - 15.20 |
Hlé |
| 15.20 - 16.50 |
Dan Tow - Top-Down SQL Tuning |
| 16.50 - 17.20 |
Umræður |
| 17.20 - 17.30 |
Ráđstefnu slitiđ |
Verð
Aðgangseyrir að ráðstefnunni
er kr. 48.900.
Skráning
Hćgt er ađ skrá sig hér
og einnig er hægt að skrá sig á index@index.is og í síma 533 1650.
Oracledagurinn 2005 er styrktur af
|
| TM Software |
|
|