Þjónustan
Kennsla
Fyrirtækið
Hafa samband
Námskeið
16.-22.10.
MOC 2400c
Implementing and Managing Microsoft Exchange Server 2003


MOC 2780a
Maintaining a Microsoft SQL Server 2005 Database


MOC 2779a
Implementing a Microsoft SQL Server 2005 Database


MOC 2733b
Updating Your Database Administration Skills to Microsoft SQL Server 2005

Öll nįmskeišin

Þegar framtíðarstarfið er í húfi hefur þú ekki efni á lélegri kennslu

Þegar fyrirtæki í tölvugeiranum leita að starfsmönnum vilja þeir fá umsækjendur sem hafa góða kunnáttu og geta unnið störf sín af fagmennsku og öryggi. Því er mikilvægt að þeir nemendur sem eru að leita eftir þekkingu á Microsoft miðlarabúnaði viti að þeir séu að fá kennslu sem gerir þá samkeppnishæfa. Það er ekki nóg að geta sýnt pappírsskírteini ef ekkert býr á bak við það.

Ef þú velur ekki bestu kennslu sem þér stendur til boða veitir þú öðrum forskot á þig.

Þegar þú velur þér sérfræðinámskeið gakktu þá úr skugga um:

  • Að tölvuskólinn sem þú velur hafi á sínum snærum bestu kennara sem völ er á.
  • Að kennarinn hafi mikla reynslu af kennslu.
  • Að kennarinn hafi reynslu utan kennslustofunnar af því sem hann kennir.
  • Að kennarinn kenni þér raunverulega eitthvað sem skiptir þig máli þannig að tíma þínum sé vel varið.
  • Að skírteinið sem þú hefur unnið þér inn að loknu námi sé einhvers virði og að þú getir sýnt það með stolti.

Jörg-Peter Kück, aðalkennari Index, hefur á síðustu 8 árum kennt mörg hundruð nemendum á tugum Microsoft sérfræðinámskeiða og MCSA og MCSE brautum. Hann hefur unnið sem ráðgjafi við Microsoft miðlarabúnað allt frá útgáfu 3.51 af Windows NT. Jörg var fyrsti kennarinn á Íslandi sem hlaut Microsoft Certified Trainer réttindi.

Guðmundur Jósepsson er kerfisfræðingur að mennt og er einn helsti Oracle sérfræðingur landsins. Sérgrein hans er afkastahámörkun á Oracle gagnagrunnum og hefur hann getið sér gott orð á því sviði. Guðmundur hefur á síðustu 15 árum einnig unnið í hugbúnaðarþróun, kerfisstjórnun Windows NT neta og við almenna útfærslu netlausna.

Karl Thoroddsen er tölvunarfræðingur með nærri 20 ára reynslu af forritun í ýmsum forritunarmálum. Hann hefur á undanförnum árum unnið sem sjálfstæður forritari bæði hérlendis og erlendis og sér nú meðal annars um hugbúnaðarþróun hjá Index. Karl hefur meðal annars kennt við tölvunarfræðiskor Háskóla Íslands.

Við hvetjum þig til að spyrjast fyrir um okkur og bera saman við aðra. Þá getur þú tekið skynsamlega ákvörðun.

 
© 2002 - 2005 Index | Suðurlandsbraut 54 | 108 Reykjavík | s: 533 1650 | fax: 533 1525