Þjónustan
Gagnagrunnsþjónusta
Netþjónusta
Gagnagrunnsþjónusta
Index veitir ráðgjöf og þjónustu á
sviði venslaðra gagnagrunna og sérhæfir sig
í Oracle og SQL Server, sem eru meðal mest notuðu
kerfa í heiminum. Þekking okkar er byggð á
margra ára reynslu og sem sérfræðingar með
MCDBA og OCP vottun nær þekking okkar langt umfram þá
grunnþekkingu sem menn þurfa til að setja upp hugbúnað.
Ráðgjafar okkar hafa aðstoðað mörg af
stærstu fyrirtækjum landsins og hafa meðal annars
komið að verkefnum í kringum uppsetningar á
Oracle Applications og SAP R/3.
Aðaláhersla okkar er á hámörkun
afkasta, afritun og endurheimt, öryggi, gagnaflutninga og -umbreytingu,
sjálfvirkni gagnagrunnsumsjónar og aðgengi. Aðferðir
okkar hafa sannað sig gegnum árin og hafa skilað
góðum árangri.
|