Forsíða

Spurningar og svör


Hvers vegna ætti ég að velja kennslu hjá Index?
Þegar atvinnuveitendur senda starfsmenn sína á námskeið ætlast þeir til að þeir öðlist nýja þekkingu og færni svo að þeir geti sinnt daglegum störfum sínum betur og aukið hagnað fyrirtækisins. Þetta þýðir að þeir vilja tryggja að skólinn hafi á sínum snærum bestu kennara og sérfræðinga á sínu sviði sem völ er á.
Með yfir sjö ára reynslu af kennslu undir belti og gríðarlega reynslu sem ráðgjafar er einfaldlega enginn betri kostur á kennslumarkaði á Íslandi en Index hugbúnaðarþjónusta og ráðgjöf. Við hvetjum þig til að spyrjast fyrir um okkur og bera það sem við höfum að bjóða í kennslu saman við aðra á markaðinum. Við erum sannfærðir um að þú munir kjósa að láta okkur sjá um kennsluþarfir þínar.

Upp


Ég veit að Index hefur getið sér gott orð fyrir Microsoft kennslu. Hvað um aðra kennslu, svo sem Oracle?
Við erum þegar byrjaðir á þessu. Í júní 2003 bauð Index Cary Millsap og Gary Goodman frá Hotsos að koma til Íslands og kenna námskeið í afkastahámörkun í Oracle gagnagrunnum. Þeir nærri tuttugu þátttakendur sem mættu á námskeiðið munu örugglega vera okkur sammála í því að þetta hafi verið merkilegasta og mikilvægasta Oracle námskeið sem haldið hefur verið á Íslandi á síðustu árum. Index mun halda áfram að bjóða upp á fyrsta flokks Oracle námskeið og hefur ánægju af því að tilkynna að Guðmundur mun halda Oracle námskeið reglulega næsta misseri.

Index býður nú einnig upp á námskeið í forritun með C#.NET sem Karl Thoroddsen kennir.

Upp


Hvað þýðir MOC?
MOC stendur fyrir Microsoft Official Curriculum. Þetta eru stöðluð námskeið frá Microsoft sem kennd eru undir stjórn leiðbeinanda. MOC námskeið eru venjulega 3 eða 5 dagar og er námsefnið í formi fyrirlestra, verkefna, kynninga á margmiðlunarformi og árangursmats. Námskeiðunum er beint að ákveðnum hópum svo sem kerfishönnuðum, kerfisstjórum, kerfisumsjónarmönnum og forriturum.

Upp


Hvað eru vinnubúðir og hvernig eru þær frábrugðnar hefðbundnum námskeiðum?
Á síðasta ári kynnti Microsoft nýtt kennslufyrirkomulag sem nefnist Microsoft Official Workshop. Þetta nýja fyrirkomulag kemur þeim verulega til góða sem vilja helst læra með því að fá að fikta í hlutunum og prófa áður en þeir lesa blessaða handbókina. Í vinnubúðunum er lögð áhersla á „að læra með því að gera“. Fyrstu tvennar vinnubúðirnar eru sérstaklega ætlaðar tæknimönnum með Windows 2000 gráður og er sjónum aðallega beint að nýjungum í Windows Server 2003. Index mun bjóða upp á fleiri vinnubúðir í framtíðini um leið og þær koma á markað. Þriggja daga vinnubúðir eru í smíðum fyrir kerfisstjóra á Exchange 5.5 sem vilja uppfæra þekkingu sína til að geta unnið með Exchange 2003.

Upp


Hvers vegna kallið þið þetta vinnubúðir?
Í vinnubúðum er mun minna er um fyrirlestra og nemendur fá mun meira af verkefnum til að æfa sig en á hefðbundnum námskeiðum. Verkefnin eru höfð lík þeim sem kunna að koma upp í daglegu starfi og enginn kemst hjá því að taka hendur úr vösum.

Upp


Get ég tekið Microsoft eða Oracle próf hjá Index?
Sem stendur býður Index nemendum sínum ekki upp á próf. Nemendur eru hvattir til að skrá sig í próf hjá næsta Thomson-Prometric eða Pearson-VUE próftökustað.

Upp


Hvað í ósköpunum er MCSA eða MCSE og hvaða máli skiptir þetta mig?
MCSA og MCSE stendur fyrir Microsoft Certified Systems Administrator og Microsoft Certified Systems Engineer. Þetta eru viðurkenndar gráður fyrir tæknimenn sem hanna, útfæra, reka og bilanagreina netkerfi og miðlarabúnað frá Microsoft. Til eru aðrar gráður frá Microsoft en MCSA og MCSE eru þær eftirsóttustu. Til að öðlast MCSA gráðu þarf nemandi að standast fjögur próf hjá viðurkenndum próftökustað. Nemendur sem ætla sér að öðlast MCSE gráðu þurfa að standast þrjú próf til viðbótar eða samtals sjö próf. Nákvæmustu upplýsingarnar um MCSA og MCSE gráðurnar er að finna á kennsluvef Microsoft.

Í hinni miklu samkeppni sem ríkir á markaðinum í dag finnst mörgum fyrirtækjum æskilegt eða jafnvel krefjast þess að umsækjendur um störf hafi ákveðnar gráður. Skoðaðu atvinnuauglýsingarnar í sunnudagsblaðinu til að sjá hvað við erum að tala um. Gráður segja auðvitað ekki alla söguna. Svokölluð „brain dump“ eða heilaspýjur og pappírsgráður eru algeng fyrirbrigði þegar kemur að „gráðubransanum“. Svar við spurningunni um heilaspýjur og pappírsgráður á þessari síðu lýsir afstöðu okkar varðandi slíkt.

Upp


Mun ég ná prófunum eftir að ég hef tekið námskeið hjá Index?
Markmið okkar er fyrst og fremst að veita þátttakendum þá færni og þekkingu sem nýtist þeim best til þess að ná settu marki. Við teljum námskeið okkar og vinnubúðir frábæran undirbúning sem mun nýtast vel þegar lært er fyrir próf. Venjulega krefst það meira en að mæta á eitt eða tvö námskeið til að öðlast gráðu. Það krefst þrjósku, metnaðar, aga og almennt mikillar reynslu á námsefninu til að ná settu marki nema þú viljir svindla og Index leggur ekki nafn sitt við slíkt.

Upp


Hvað er „brain dump“ og hvernig tengist það pappírs-MCSA, pappírs-MCSE eða pappírs-hverju-sem-er?
Því miður er það svo að til er fólk sem öðlast hefur gráður án þess að hafa nokkurn tíma komið nálægt því kerfi sem það hefur fengið vottun fyrir, þ.e.a.s. svokallaðir sérfræðingar án nokkurrar starfsreynslu. Venjulega eru þeir kallaðir pappírssérfræðingar vegna þess að skírteinið þeirra er ekki pappírsins virði sem það er prentað á. Þessir aðilar ná prófum með því að læra eins og páfagaukar svokölluð „brain dump“ sem við höfum kosið að kalla heilaspýjur. Þetta eru skjöl sem innihalda raunverulegar spurningar og svör úr prófum og er hægt að nálgast víða. Index þykir lítt til slíkra námsaðferða koma og styður þær ekki á neitt hátt. Við látum nemendum okkar ekki slíkt í té og kennsluaðferðir okkar taka ekki mið af pappírsgráðu aðferðinni.

Það sem við látum nemendum okkar í té eru vísanir á tæknilegt efni sem styður námsefnið, bækur, greinar og annað efni en fyrst og fremst er það reynsla og hæfni kennarana sem mun gera þér kleift að fá sem mest út úr námskeiðum hjá okkur. Ef þú ert að leita þér að skjótri leið að gráðu ættirðu ef til vill að leita annað.

Upp


Hvers konar þjálfun er Windows Server 2003 MCSE braut?
Á Windows Server 2003 MCSE brautinni er nemendum kennd hönnun, úfærsla og bilanagreining á Windows Server 2003 miðlara- og netumhverfi og undirbýr þá fyrir þau próf sem eiga við námsefnið. Brautin er ætluð nemendum sem hafa þegar öðlast MCSA gráðu fyrir Windows Server 2003 og vilja ljúka MCSE námi. Í ár beinum við athyglinni að hönnun og útfærslu á Active Directory og Microsoft Exchange Server 2003. MCSE brautin er kennd á kvöldin milli kl 17:00 og 20:30 tvisvar í viku í 15 vikur.

Upp


Býður Index upp á önnur námskeið en þau sem talin eru upp á heimasíðunni?
Já. Tækninýjungar koma sífellt örar á markaðinn og stöðugt er verið að þróa ný námskeið. Við gerum okkar besta til að halda námskeiðslistanum okkar við en ef þú hefur áhuga á námsefni og sérð ekki viðeigandi námskeið á listanum okkar skaltu hafa samband við okkur og að öllum líkindum munum við geta boðið upp á námskeið sem hentar.

Upp


Býður Index upp á námskeið á öðrum tímum en þeim sem koma fram á heimasíðuni?
Já. Ef þú sérð námskeið sem þú hefur áhuga á en kennslutíminn hentar þér ekki skaltu hafa samband við okkur og ræðum saman um hvað við getum gert fyrir þig.

Upp


Býður Index upp á námskeið annars staðar en í kennslustofu sinni?
Já. Sérstaða okkar felst í því að bjóða viðskiptavinum upp á innanhússkennslu þar sem við komum með námskeiðið til þeirra. Ef þú getur útvegað nauðsynlega aðstöðu og búnað munum við halda námskeið hvar sem þú vilt. Margir hafa orðið til að nýta sér þetta þar sem þetta býður upp á meiri sveigjanleika, meiri tengsl við starfsemi fyrirtækisins og minni röskun.

Upp

 
© 2002 - 2004 Index | Suðurlandsbraut 54 | 108 Reykjavík | s: 533 1650 | fax: 533 1525