Viðskiptagreind og stjórnendaupplýsingar á einfaldan og öruggan
hátt með SQL Server 2005 frá Microsoft
Með tilkomu Microsoft SQL Server 2005 er lagður grunnur að nýrri kynslóð verkfæra
sem veita stjórnendum fyrirtækja allar þær lykilupplýsingar sem þeir óska. Á einum og sama stað geta
fyrirtæki nú mótað framsetningu gagna úr rekstrarkerfum sínum á einfaldan hátt. Með SQL Server 2005 fylgja m.a.
- SQL Server Integration Services: Notað meðal annars til að flytja gögn úr rekstrarkerfum yfir í vöruhús gagna.
- Analysis Services 2005: Notað til að hanna og smíða OLAP teninga og innleiða viðskiptagreind fyrir starfsmenn og stjórnendur.
- Reporting Services 2005: Notað til að hanna og birta gögn úr OLAP teningum eða öðrum gagnalindum á skýrsluformi.
Með Microsoft SQL Server 2005 geta fyrirtæki sparað sér verkfæri frá þriðja aðila þar sem hægt er að vinna öll verk á einum stað.
|